Herbergis uppfærsla Casa de Campo
Fyrir þá sem vilja enn meiri þægindi er hægt að uppfæra í Elite Patio herbergi. Herbergin eru um 56 m², glæsilega innréttuð og bjóða upp á meira rými, veglegra baðherbergi með bæði baðkari og sér sturtu ásamt rúmgóðri einkaverönd. Elite Patio er frábær kostur fyrir þá sem vilja aðeins meiri lúxus og rými á meðan á dvölinni stendur.