Casa de Campo er eitt virtasta og glæsilegasta golfresort heims og hefur í meira en 50 ár verið meðal eftirsóttustu áfangastaða kylfinga. Resortið sameinar golf í heimsklassa, lúxusgistingu og einstaka afþreyingu í stórbrotnu umhverfi við Karíbahafið.
Golfið er hjarta resortsins með þremur stórkostlegum Pete Dye golfvöllum – Teeth of the Dog, Dye Fore og The Links. Teeth of the Dog hefur um árabil verið talinn einn besti golfvöllur Karabíska hafsins og er fyrir marga draumavöllur sem þeir stefna á að spila að minnsta kosti einu sinni á ævinni.
Gistingin er í hæsta gæðaflokki, hvort sem valið er glæsileg hótelherbergi eða einkavillur með sundlaug, þjónustufólki og morgunverði. Á resortinu er einnig fjölbreytt úrval veitingastaða og bara, einkasmábátahöfn, Minitas-ströndin, glæsileg heilsulind, líkamsrækt, tennis-, padel- og pickleballvellir, pólóvöllur í heimsklassa og skotíþróttamiðstöð.
Innan svæðisins er einnig Altos de Chavón, einstakt lista- og menningarþorp sem er byggt í anda 16. aldar Miðjarðarhafsþorps með veitingastöðum, verslunum, listasöfnum og glæsilegu hringleikahúsi þar sem reglulega eru haldnir tónleikar og viðburðir.
Casa de Campo býður upp á mun meira en einstaka golfupplifun – þetta er einn glæsilegasti lúxusáfangastaður Karabíska hafsins þar sem fyrsta flokks þjónusta, afþreying og umhverfi skapa ferðaupplifun sem stendur upp úr.