Komdu með okkur til Costa Brava á Spáni og upplifðu frábæra golfferð á fallegu og rólegu svæði í norðurhluta landsins, skammt frá Barcelona. Flogið er í beinu flugi með Icelandair til Barcelona og þaðan er þægilegur akstur að Empordà svæðinu við Pals.
Við gistum á Hotel Terraverda, mjög þægilegu 4 stjörnu golfhóteli sem stendur beint við Empordà golfvellina. Aðstaðan er einstaklega þægileg þar sem aðeins nokkur skref taka þig út á æfingasvæðið og fyrsta teig.
Spilað er á Empordà Golf sem býður upp á tvo ólíka og skemmtilega 18 holu velli – Links og Forest – sem tryggja fjölbreytta og skemmtilega spilamennsku í fallegu umhverfi Costa Brava.
Empordà Golf var hannaður af bandaríska arkitektinum Robert von Haage og hefur frá upphafi verið einn af áhugaverðustu golfáfangastöðum Costa Brava. Hér eru tveir ólíkir 18 holu vellir sem teljast meðal þeirra allra bestu á spáni og bjóða upp á fjölbreytta og skemmtilega leikupplifun.
Forest völlurinn - Klassískur parkland völlur sem liggur í gegnum fallegan furuskóg þar sem furutré ramma inn brautirnar og skapa einstaka stemningu. Þessar fururömmuðu holur teljast með því fallegasta sem finnst á Spáni og gefa vellinum mikinn karakter og dramatík.
Vel staðsettar glompur, vatn á nokkrum holum og fjölmargar upphækkaðar flatar gera völlinn afar skemmtilegan.
Dunes völlurinn - Opnari og víðáttumeiri völlur með fáum trjám og landslagi sem minnir á klassíska breska Links-velli. Náttúrulegur gróður utan brauta, fjölmargar glompur, hraðar og fallega mótaðar flatar.
Vatn kemur einnig við sögu á nokkrum holum og bætir við fjölbreytni í hönnun vallarins. Dunes skapar því mjög skemmtilega andstæðu við Forest.
Gist er á Hotel Terraverda, glæsilegu fjögurra stjörnu golfresorti sem stendur beint við Empordà völlinn. Hótelið sameinar nútímalega og stílhreina hönnun með afslöppuðu andrúmslofti þar sem allt er sniðið að þægindum kylfinga. Herbergin eru mjög stór og björt og bjóða upp á notalegt rými til að hvíla sig og undirbúa næsta golfdag.
Á hótelinu eru tveir mjög góðir veitingastaðir, notalegur bar og sundlaugarsvæði þar sem hægt er að njóta síðdegisins eftir góðan hring. Aðstaðan er einstaklega þægileg – aðeins nokkur skref skilja þig frá æfingasvæðinu og fyrsta teig.
Costa Brava býður upp á mun meira en frábært golf. Í nágrenni Empordà er að finna fallegar göngu- og hjólaleiðir sem liggja um sveitina og strandlengjuna, þar sem hægt er að njóta kyrrðarinnar og náttúrunnar á milli golfhringja. Fyrir þá sem vilja aðeins meiri hreyfingu er auðvelt að skipuleggja kajakferðir, bátaferðir eða paddle-surf við hina fallegu Medes-eyjar og strandlengju svæðisins.
Í nágrenninu eru einnig sjarmerandi miðaldabæir eins og Pals þar sem þröngar steinlagðar götur, notaleg kaffihús og veitingastaðir skapa ekta katalónska stemningu.
✅ Beint flug með ICELANDAIR til Málaga
✅ Flutningur til og frá flugvelli
✅ Farangurs og innritunar þjónusta BagBee*
✅ 10kg handfarangurs taska ásamt golfferðapoka
✅ Gisting í 7 nætur ásamt morgunverði
✅ Ótakmarkað golf
✅ Fararstjórn, Jón Þór Gylfason
*BagBee er þjónustufyrirtæki sem sækir töskurnar heim til ykkar daginn fyrir brottför, sér alfarið um að innrita farangur og farþega. Bagbee afhendir ykkur brottfararspjöld – þið mætið einfaldlega upp á flugvöll, farið beint upp og í gegnum öryggisleitina, engar innritunarraðir, engar töskur til og frá bíl og ekkert vesen.
❌ Golfbíll er ekki innifalinn, hægt að bæta við í bókunarferli