Komdu með okkur til Costa Brava á Spáni og upplifðu frábæra golfferð á fallegu og rólegu svæði í norðurhluta landsins, skammt frá Barcelona. Flogið er í beinu flugi með Icelandair til Barcelona og þaðan er þægilegur akstur að Empordà svæðinu við Pals. Við gistum á Hotel Terraverda, glæsilegu fjögurra stjörnu golfhóteli sem stendur beint við Empordà golfvellina. Aðstaðan er einstaklega góð þar sem aðeins nokkur skref eru frá hótelinu út á æfingasvæðið og fyrsta teig. Kennsla fer fram á æfingasvæði Empordá Golf sem liggur innan um fallegt umhverfi Costa Brava.
FARA Golfskólinn á Empordà Golf sameinar faglega PGA-kennslu, persónulega nálgun og frábæra golfupplifun á einu glæsilegasta golfsvæði Spánar. Ferðin er átta dagar með sex hnitmiðuðum kennsludögum þar sem unnið er að því að bæta leik hvers og eins. Golfskólinn hentar bæði byrjendum sem vilja byggja upp traustan grunn og lengra komnum kylfingum sem stefna á næsta stig í sínum leik. Að hámarki eru átta þátttakendur í hópi, sem tryggir vandaða og einstaklingsmiðaða leiðsögn og raunverulegar framfarir. Kennslan nær meðal annars til:
Kennsludagar hefjast á morgnana með markvissri þjálfun og eftir hádegi hafa þátttakendur svo ótakmarkaðan aðgang að æfingasvæði Empordà Golf til að festa nýja tækni í sessi. Allir fara einnig hring með kennara á vellinum þar sem unnið er með leikskipulag og yfirfærslu æfinga inn í raunverulegar leikaðstæður. Markmiðið er einfalt. Að bæta leikinn, auka sjálfstraustið og ekki síst að njóta þess að spila golf í fyrsta flokks umhverfi.
Gist er á Hotel Terraverda, glæsilegu fjögurra stjörnu golf resorti sem stendur beint við Empordà völlinn. Hótelið sameinar nútímalega og stílhreina hönnun með afslöppuðu andrúmslofti þar sem allt er sniðið að þægindum kylfinga. Herbergin eru mjög stór og björt og bjóða upp á notalegt rými til að hvíla sig og undirbúa næsta golfdag. Á hótelinu eru tveir mjög góðir veitingastaðir,notalegur bar og sundlaugarsvæði þar sem hægt er að njóta síðdegisins eftir góðan hring. Aðstaðan er einstaklega þægileg – aðeins nokkur skref skilja þig frá æfingasvæðinu og fyrsta teig.
Costa Brava býður upp á mun meira en frábært golf. Í nágrenni Empordà er að finna fallegar göngu- og hjólaleiðir sem liggja um sveitina og strandlengjuna, þar sem hægt er að njóta kyrrðarinnar og náttúrunnar á milli golfhringja. Fyrir þá sem vilja aðeins meiri hreyfingu er auðvelt að skipuleggja kajakferðir, bátaferðir eða paddle-surf við hinar fallegu Medes eyjar og strandlengju svæðisins. Í nágrenninu eru einnig sjarmerandi miðaldabæir eins og Pals, þar sem þröngar steinlagðar götur, notaleg kaffihús og veitingastaðir skapa ekta katalónska stemningu.
✅ Beint flug með ICELANDAIR til Málaga
✅ Flutningur til og frá flugvelli
✅ Farangurs og innritunar þjónusta BagBee*
✅ 10kg handfarangurs taska ásamt golfferðapoka
✅ Gisting í 7 nætur ásamt morgunverði
✅ Golfkennsla í 6 daga með PGA Golfkennara
✅ Fararstjórn, Jón Þór Gylfason
*BagBee er þjónustufyrirtæki sem sækir töskurnar heim til ykkar daginn fyrir brottför, sér alfarið um að innrita farangur og farþega. Bagbee afhendir ykkur brottfararspjöld – þið mætið einfaldlega upp á flugvöll, farið beint upp og í gegnum öryggisleitina, engar innritunarraðir, engar töskur til og frá bíl og ekkert vesen.