Golfskóli á La Costa með PGA Golfkennara

Komdu með okkur til Costa Brava á Spáni og upplifðu frábæra golfferð á fallegu og rólegu svæði í norðurhluta landsins, skammt frá Barcelona. Flogið er í beinu flugi með Icelandair til Barcelona og þaðan er þægilegur akstur að La Costa við Pals. Við gistum á La Costa Beach & Golf Resort, huggulegu fjögurra stjörnu golfhóteli sem stendur beint við Golf de Pals og ströndina. Aðstaðan er einstaklega góð þar sem aðeins nokkur skref eru frá hótelinu út á æfingasvæðið og fyrsta teig. Kennsla fer fram á æfingasvæði Pals sem liggur innan um fallegt umhverfi Costa Brava.

Golfskóli FARA

FARA Golfskólinn á La Costa sameinar faglega PGA-kennslu, persónulega nálgun og frábæra golfupplifun á einu glæsilegasta golfsvæði Spánar. Ferðin er átta dagar með sex hnitmiðuðum kennsludögum þar sem unnið er að því að bæta leik hvers og eins. Golfskólinn hentar bæði byrjendum sem vilja byggja upp traustan grunn og lengra komnum kylfingum sem stefna á næsta stig í sínum leik. Að hámarki eru átta þátttakendur í hópi, sem tryggir vandaða og einstaklingsmiðaða leiðsögn og raunverulegar framfarir. Kennslan nær meðal annars til:

  • Uppbyggingar og stöðugleika í sveiflu
  • Stutta spilsins – pútt, vipp og högg í kringum flatir
  • Járna- og teighögga
  • Leikskipulags og ákvarðanatöku á vellinum

Kennsludagar hefjast á morgnana með markvissri þjálfun og eftir hádegi hafa þátttakendur svo ótakmarkaðan aðgang að æfingasvæði Golf de pals til að festa nýja tækni í sessi. Allir fara einnig hring með kennara á vellinum þar sem unnið er með leikskipulag og yfirfærslu æfinga inn í raunverulegar leikaðstæður. Markmiðið er einfalt. Að bæta leikinn, auka sjálfstraustið og ekki síst að njóta þess að spila golf í fyrsta flokks umhverfi.

Tryggðu þér pláss

Verð á mann

299000

September 30, 2026

cvbdc

Hótelið

La Costa Beach & Golf Resort er notalegt og vel staðsett fjögurra stjörnu hótel þar sem þú ert með golfvöllinn öðrum megin við hótelið og ströndina hinum megin. Herbergin eru rúmgóð og þjónustan mjög góð. Á hótelinu er beint aðgengi út á ströndina, notalegt sundlaugarsvæði, æðisleg veitingaaðstaða og afslappað andrúmsloft sem gerir dvölina þægilega frá morgni til kvölds.

Svæðið

Pals og Costa Brava eru þekkt fyrir fallegar strandir, góðan mat og notalega spænska stemningu. Svæðið sameinar heillandi gamla bæjarkjarna, víðáttumiklar sandstrendur og afslappað andrúmsloft sem gerir dvölina einstaklega ánægjulega.

Í nágrenninu er ágætis úrval veitingastaða og kaffihúsa þar sem hægt er að njóta fersks sjávarfangs og katalónskra sérrétta ásamt góðum vínum svæðisins. Fallegar gönguleiðir liggja meðfram ströndinni og bjóða upp á frábært útsýni og notalega hreyfingu eftir daginn á golfvellinum.

Svæðið hentar fullkomlega þeim sem vilja sameina golf, slökun og skemmtilega upplifun utan vallar – hvort sem það er sól og sjór, góð máltíð eða róleg kvöldstund í suðrænu umhverfi.

Innifalið

✅ Beint flug með ICELANDAIR til Barcelona
✅ Flutningur til og frá flugvelli
✅ Farangurs og innritunar þjónusta BagBee*
✅ 10kg handfarangurs taska ásamt golfferðapoka
✅ Gisting í 7 nætur
✅ Morgun og kvöldverður alla daga
✅ Golfkennsla í 6 daga með Kjartan Tómas Guðjónsson PGA Golfkennara
✅ Fararstjórn - Kjartan Tómas Guðjónsson PGA Golfkennari, Jón Þór Gylfason

*BagBee er þjónustufyrirtæki sem sækir töskurnar heim til ykkar daginn fyrir brottför, sér alfarið um að innrita farangur og farþega. Bagbee afhendir ykkur brottfararspjöld – þið mætið einfaldlega upp á flugvöll, farið beint upp og í gegnum öryggisleitina, engar innritunarraðir, engar töskur til og frá bíl og ekkert vesen.


Tryggðu þér pláss

Verð á mann

299000

September 30, 2026

cvbdc

Tryggðu þér pláss

Verð á mann

299000

September 30, 2026

cvbdc

cvbdc