Komdu með okkur til Costa Brava á Spáni og upplifðu frábæra golfferð á rólegu og fallegu svæði nálægt Barcelona. Flogið er í beinu flugi með Icelandair til Barcelona og þaðan er akstur á hótelið við Pals. Við gistum á La Costa Beach & Golf Resort sem er huggulegt 4ra stjörnu hótel með beina tengingu við ströndina og golfvöllinn. Spilað er á Golf de Pals vellinum sem er við hótelið og gerir ferðina einstaklega þægilega þar sem aðeins nokkur skref taka þig beint út á golfvöll.
Golf de Pals – Klassískur og vinsæll "Parkland" völlur á Costa Brava með fallegu umhverfi og skemmtilegum brautum., mjög vel hirtur völlur þar sem green, brautir og teigar er í virkilega góðu standi. Völlurinn var hannaður af Fred W. Hawtree árið 1966 en hann liggur á flötu landi með frábærum sandjarðvegi sem hleypir vatni auðveldlega í gegn. Það tryggir að brautirnar, sem eru þröngar og trjáklæddar, flæði aldrei yfir – jafnvel í mikilli Miðjarðarhafsúrkomu á veturna sem hjálpar til að ástandið sé gott á vellinum frá vori yfir haust. Hann er staðsettur við hótelið sem gerir allt svo einfalt og þægilegt. Ólíkt mörgum öðrum völlum sem liggja nálægt sjónum er hann skjólgóður, þar sem hann er umvafinn fallegum trjágróðri. Hentar vel bæði þeim sem vilja keppnisgolf og þeim sem vilja njóta góðrar golfferðar í afslöppuðu andrúmslofti.
Klúbbhúsið er huggulegt og afslappandi eftir góðan golfhring. Þar ríkir róleg stemming og þægilegt útisvæði með fallegu útsýni út á völlinn. Fullkomið til að njóta í mat og drykk í góðum félagsskap.
La Costa Beach & Golf Resort er notalegt og vel staðsett fjögurra stjörnu hótel þar sem þú ert með golfvöllinn öðrum megin við hótelið og ströndina hinum megin. Herbergin eru rúmgóð og þjónustan mjög góð. Á hótelinu er beint aðgengi út á ströndina, notalegt sundlaugarsvæði, æðisleg veitingaaðstaða og afslappað andrúmsloft sem gerir dvölina þægilega frá morgni til kvölds.
Pals og Costa Brava eru þekkt fyrir fallegar strandir, góðan mat og notalega spænska stemningu. Svæðið sameinar heillandi gamla bæjarkjarna, víðáttumiklar sandstrendur og afslappað andrúmsloft sem gerir dvölina einstaklega ánægjulega.
Í nágrenninu er ágætis úrval veitingastaða og kaffihúsa þar sem hægt er að njóta fersks sjávarfangs og katalónskra sérrétta ásamt góðum vínum svæðisins. Fallegar gönguleiðir liggja meðfram ströndinni og bjóða upp á frábært útsýni og notalega hreyfingu eftir daginn á golfvellinum.
Svæðið hentar fullkomlega þeim sem vilja sameina golf, slökun og skemmtilega upplifun utan vallar – hvort sem það er sól og sjór, góð máltíð eða róleg kvöldstund í suðrænu umhverfi.
✅ Beint flug með ICELANDAIR til Barcelona
✅ Farangurs og innritunar þjónusta BagBee*
✅ 10kg handfarangurs taska ásamt golfferðapoka
✅ Gisting í 7 nætur ásamt morgunverði
✅ Kvöldverður öll kvöld
✅ Ótakmarkað golf*
✅ Flutningur til og frá flugvelli
✅ Fararstjóri - Jón Þór Gylfason
*BagBee er þjónustufyrirtæki sem sækir töskurnar heim til ykkar daginn fyrir brottför, sér alfarið um að innrita farangur og farþega. Bagbee afhendir ykkur brottfararspjöld – þið mætið einfaldlega upp á flugvöll, farið beint upp og í gegnum öryggisleitina, engar innritunarraðir, engar töskur til og frá bíl og ekkert vesen.
❌ Golfbíl er ekki innifalinn, hægt að bæta við í bókunarferli