ATH! Mjög takmarkað sætaframboð í þessar ferðir.
Komdu með okkur til Marbella á Costa del Sol og upplifðu lúxusgolfferð í hæstagæðaflokki. Flogið er í beinu flugi með Icelandair til Málaga en þaðan erstuttur akstur á hótelið. Við gistum á Anantara Villa Padierna Palace Resortsem er stórglæsilegt fimm stjörnu hótel umkringt fallegum golfvöllum og þekkt fyrir einstaka þjónustu og umhverfi sem og aðstöðu á heimsmælikvarða. Þrír 18 holu golfvellir eru við hótelið og við munum spila á tveimur þeirra, Flamingosog Alferini. Sá þriðji er 18 holu par 3 völlur sem gestir hafa fullan aðgangað.
Einstaklega þægilegt aðgengi er út á golfvellina. Farið er beint frá herbergjum niður með lyftu þangað sem golfbílarnir bíða með golfsettunum og hægt er að keyra beint út á golfvöll.
Flamingos –Flamingos er upprunalegur golfvöllur svæðisins og jafnframt einn sá fallegastiá Costa del Sol. Af vellinum blasir Miðjarðarhafið við og á björtum degi má sjá alla leið til Gíbraltar og Afríku. Flatirnar eru rúmgóðar en brautirnar þrengri, sérstaklega á fyrri níu holunum. Völlurinn hefur hýst stórmót á borð við European Senior Tour og Opna spænska meistaramót kvenna, sem hvort tveggja undirstrikar gæði hans og alþjóðlega stöðu.
Alferini – Alferini er í friðsælu umhverfi í grónum dal og umkringdur fjöllum. Hann er einn af fáum par 73 völlum á Costa del Sol og var hannaður af spænska arkitektinum Antonio García Garrido. Þessi 18 holu völlur er tæknilega krefjandi og gerir kröfur um bæði lengd og nákvæmni. Langar brautir og stórar flatir skapa spennandi og skemmtilega leikupplifun fyrir þá sem vilja reyna á alla þætti golfsins í rólegu en jafnframt stórbrotnu umhverfi.
Tramores – Kjörinn völlur fyrir þau sem vilja fínpússa tæknina eða eru að stíga sín fyrstu skref í golfinu. Á svæðinu er starfrækt golfakademía undir leiðsögn Michael Campbell, sem veitir kylfingum framúrskarandi þjálfunaraðstöðu. Þessi 18 holu executive-völlur er 3.468 metrar að lengd, er hraður og krefst nákvæmni. Hann liggur í fallegu og kyrrlátu umhverfi milli tveggja dala með útsýni yfir Miðjarðarhafið. Fullkominn staður til að njóta leiksins og suðrænnar stemningar í senn.
Anantara Villa Padierna Palace Benahavis Marbella Resort er staðsett í fallegu umhverfií Andalúsíu á milli Marbella, Benahavís og Estepona við Costa del Sol. Hótelið býður upp á frábæran aðgang að sandströndum og Miðjarðarhafinu og er í þægilegri fjarlægð frá Málaga, Ronda og Gibraltar. Á hótelinu eru tíu frábærir veitingastaðir með mismunandi áherslur á matargerð. Frábærir barir og klúbbhúsið algjörlega einstakt að gæðum. Resortið er umkringt gróskumiklum görðum og golfvöllum og býður upp á glæsilega aðstöðu með þremur golfvöllum,stöðuvatni og fyrsta flokks heilsu- og vellíðunaraðstöðu. Hér er um að ræða fullkominn áfangastað fyrir þá sem vilja upplifa alvöru lúxus, þar sem hvert smáatriði er úthugsað og þjónustan í hæsta gæðaflokki.
Marbella svæðið býður upp á heillandi blöndu af fyrsta flokks golfi, framúrskarandi veitingastöðum, sólríku strandlífi og fágaðri stemningu allt árið um kring. Hér mætast lúxus og léttleiki suðrænnar lífsstílsmenningar á einstaklega aðlaðandi hátt. Í örstuttri fjarlægð eru gylltar sandstrendur, lífleg strandgönguleið meðfram Miðjarðarhafinu og spennandi úrval veitingastaða og kaffihúsa þar sem hægt er að njóta kvöldsins yfir góðri máltíð og vínglasi. Eftir vel heppnaðan dag á vellinum er tilvalið að njóta kvöldsins í þessu einstaka umhverfi.
✅ Beint flug með ICELANDAIR til Málaga
✅ Flutningur til og frá flugvelli
✅ Farangurs og innritunar þjónusta BagBee*
✅ 10kg handfarangurs taska ásamt golfferðapoka
✅ Gisting í 7 nætur ásamt morgunverði
✅ Ótakmarkað golf
✅ Aðgangur að heilsulind
✅ Fararstjórn, Jón Þór Gylfason 26.sept - 3.okt
✅ Fararstjórn, Gunnlaugur Elsuson - PGA Golfkennari 14.-21. okt
*BagBee er þjónustufyrirtæki sem sækir töskurnar heim til ykkar daginn fyrir brottför, sér alfarið um að innrita farangur og farþega. Bagbee afhendir ykkur brottfararspjöld – þið mætið einfaldlega upp á flugvöll, farið beint upp og í gegnum öryggisleitina, engar innritunarraðir, engar töskur til og frá bíl og ekkert vesen.
❌ Golfbíll er ekki innifalinn, Kostar 50 evrur hringurinn og er greiddur á staðnum