Lúxus golfferð til Algarve

Komdu með FARA í einstaka golfferð til Ombria Algarve, eins nýjasta og glæsilegasta golfresorts Portúgals. Resortið er staðsett í fallegu og friðsælu landslagi skammt frá Loulé á Algarve, þar sem fimm stjörnu lúxus, stórbrotin náttúra og fyrsta flokks golf fara saman.

Gist er á hinu glæsilega Viceroy at Ombria Algarve, sem var valið besta fimm stjörnu hótel Portúgals á Publituris Portugal Travel Awards 2026. Golfvöllurinn hefur ekki síður vakið athygli frá opnun og var valinn Europe’s Best New Golf Course á World Golf Awards 2024.

Ombria býður upp á allt aðra upplifun af Algarve en margir þekkja. Í stað strandlengjunnar liggur resortið í grænum hæðum inn til landsins, umkringt dölum, ám og ósnortinni náttúru. Hér ríkir róleg og afslöppuð stemning en á sama tíma er stutt í Loulé, Vilamoura, ströndina og allt það besta sem Algarve hefur upp á að bjóða.

‍

Golfvöllurinn

Ombria Golf Course

Ombria Golf Course er 18 holu, par 71 völlur hannaður af portúgalska golfvallahönnuðinum Jorge Santana da Silva. Völlurinn opnaði árið 2023 og vakti strax mikla athygli í golfheiminum. Aðeins ári síðar var hann valinn Europe’s Best New Golf Course á World Golf Awards 2024 – viðurkenning sem undirstrikar hversu sérstök golfupplifunin á Ombria er.

Völlurinn liðast í gegnum stórbrotið landslag Algarve þar sem brautirnar fylgja náttúrulegum hæðum og dölum svæðisins. Árfarvegir, gömul tré og óspillt náttúra ramma inn brautirnar og skapa umhverfi sem er ólíkt því sem margir tengja við golf á Algarve. Hér fær maður tilfinningu fyrir því að völlurinn hafi alltaf átt heima í landslaginu.

Hver hola býður upp á nýtt sjónarhorn og nýja áskorun. Hæðarmunur, fjölbreyttar brautir og vel staðsettar hindranir kalla á úthugsaðan leik þar sem nákvæmni og réttar ákvarðanir skipta ekki síður máli en lengd. Á sama tíma gerir fjölbreytt hönnun vallarins hann skemmtilegan fyrir kylfinga á ólíkum getustigum.

Það sem stendur þó helst upp úr er heildarupplifunin – stórbrotið útsýni yfir sveitir Algarve, kyrrðin og einstakt landslagið gera hring á Ombria að mun meira en bara golfhring. Þetta er völlur sem maður vill spila aftur og aftur.

‍

‍

Tryggðu þér pláss

Verð á mann

389000

cvbdc

Verð á mann

389000

April 26, 2027

cvbdc

cvbdc

Hótelið

Viceroy at Ombria Algarve er eitt glæsilegasta lúxushótel Portúgals, staðsett í hjarta Ombria resortsins þar sem golfvöllurinn, fimm stjörnu þjónusta og stórbrotið landslag Algarve mætast. Gæðin hafa vakið mikla athygli frá opnun – Ombria náði 10. sæti yfir 100 bestu golfresort Evrópu hjá Leading Courses árið 2025 og Viceroy at Ombria Algarve var valið besta fimm stjörnu hótel Portúgals á Publituris Portugal Travel Awards 2026.

Resortið er hannað eins og glæsilegt portúgalskt fjallaþorp þar sem steinlagðar götur, lítil torg og fallegar byggingar falla inn í náttúruna í kring. Útkoman er einstök – afslöppuð og fáguð stemning þar sem lúxusinn er til staðar í hverju smáatriði án þess að tapa portúgölskum karakter. Herbergin eru rúmgóð og einstaklega vel hönnuð, með fyrsta flokks aðstöðu og fallegu útsýni yfir resortið og landslagið í kring.

Matarupplifunin er stór hluti af dvölinni á Ombria. Á resortinu er fjölbreytt úrval veitingastaða þar sem portúgölsk matargerð og ferskt hráefni úr nærumhverfinu eru í aðalhlutverki – allt frá afslöppuðum máltíðum yfir daginn yfir í glæsilega kvöldverði.

Eftir golfdaginn tekur svo við allt sem maður ætlast til af fimm stjörnu golfresorti. Hægt er að njóta sundlauganna með útsýni yfir landslagið, slaka á í glæsilegri spa- og wellness-aðstöðu eða einfaldlega njóta kyrrðarinnar og umhverfisins. Spa-aðstaðan býður meðal annars upp á innisundlaug, sauna, gufubað, líkamsrækt og fjölbreytt úrval spa-meðferða.

Viceroy at Ombria Algarve er því miklu meira en bara hótel við golfvöll – þetta er fimm stjörnu golfupplifun þar sem gisting, golf, matur, þjónusta og umhverfi mynda eina glæsilega heild.

‍

Svæðið

Algarve

Algarve er einn þekktasti og vinsælasti golfáfangastaður Evrópu og ekki að ástæðulausu. Suðurströnd Portúgals er þekkt fyrir milt og sólríkt loftslag, stórbrotnar strendur, fallega strandbæi, frábæra veitingastaði og einhverja bestu golfvelli álfunnar. Svæðið hefur í áratugi laðað að sér kylfinga alls staðar að úr heiminum og býður upp á einstaka blöndu af golfi, matarmenningu og afslöppuðum portúgölskum lífsstíl.

Ombria sýnir þó allt aðra hlið á Algarve. Resortið er staðsett í grænum hæðum rétt fyrir utan hinn sjarmerandi bæ Loulé, umkringt óspilltri náttúru og fallegu sveitalandslagi. Hér er kyrrðin og náttúran í fyrirrúmi, langt frá mesta ysnum við strandlengjuna, án þess þó að fórna aðgengi að því besta sem Algarve hefur upp á að bjóða.

Stutt er til Loulé og Vilamoura, auk strandarinnar, veitingastaða, verslana og fjölbreyttrar afþreyingar. Faro-flugvöllur er jafnframt aðeins í um 20–25 mínútna akstursfjarlægð, sem gerir staðsetningu Ombria einstaklega þægilega.

Á Ombria sameinast þannig tvær hliðar Algarve – kyrrðin og náttúrufegurðin inn til landsins annars vegar og lífleg strandmenning, frábær matargerð og allt það sem hefur gert Algarve að einum eftirsóttasta áfangastað Suður-Evrópu hins vegar.

‍

Innifalið

✅ Beint flug með ICELANDAIR til Faro
✅ Flutningur til og frá flugvelli
✅ Farangurs og innritunar þjónusta BagBee*
✅ 10kg handfarangurs taska ásamt golfferðapoka
✅ Gisting í 7 nætur ásamt morgunverði
✅ 6 golfhringir
✅ Golfbíll
✅ Aðgangur að heilsulind
✅ Íslensk fararstjórn


*BagBee er þjónustufyrirtæki sem sækir töskurnar heim til ykkar daginn fyrir brottför og sér alfarið um að innrita farangur og farþega. Bagbee afhendir ykkur brottfararspjöld og þið mætið einfaldlega upp á flugvöll, farið beint upp og í gegnum öryggisleitina. Engar innritunarraðir, engar töskur til og frá bíl og ekkert vesen.
❌Kvöldverður er ekki innifalinn en hægt að bæta við í bókunarferli*

Tryggðu þér pláss

Verð á mann

389000

cvbdc

Verð á mann

389000

April 26, 2027

cvbdc

cvbdc

Tryggðu þér pláss

Verð á mann

389000

May 3, 2027

cvbdc

cvbdc

Verð á mann

389000

April 26, 2027

cvbdc

cvbdc