Quinta da Marinha er glæsilegur golfáfangastaður við Atlantshafsströnd Portúgals, rétt fyrir utan hinn fallega strandbæ Cascais. Hér sameinast fimm stjörnu gisting, fyrsta flokks golf og einstök staðsetning með Atlantshafið og Sintra-fjöllin í bakgrunni – allt í stuttri fjarlægð frá bæði miðbæ Cascais og Lissabon.
Golfið fer fram á Quinta da Marinha Golf, glæsilegum 18 holu velli hönnuðum af hinum heimsþekkta Robert Trent Jones Sr. Völlurinn liðast í gegnum fallegt landslag með stórbrotnu útsýni yfir Atlantshafið og Sintra-fjöllin og hefur í gegnum tíðina hýst fjölda alþjóðlegra golfmóta. Í næsta nágrenni er jafnframt Oitavos Dunes, einn virtasti golfvöllur Portúgals, sem gefur möguleika á að bæta við enn einni einstakri golfupplifun.
Quinta da Marinha sker sig ekki síður úr fyrir staðsetninguna. Cascais er einn glæsilegasti strandbær Portúgals, þekktur fyrir fallegan miðbæ, frábæra veitingastaði, strendur og afslappað mannlíf. Sintra og Lissabon eru einnig skammt undan og því er nóg að upplifa utan golfvallarins.
Flogið er beint með Icelandair til Lissabon og þaðan er stutt að Quinta da Marinha. Hér færðu því golf, fimm stjörnu gistingu, portúgalska matarmenningu og lífið við Atlantshafsströndina í einni og sömu ferð.
Frábær 18 holu völlur hannaður af Robert Trent Jones Sr., einum áhrifamesta golfvallahönnuði 20. aldarinnar. Völlurinn opnaði árið 1984 og hefur síðan skipað sér sess meðal þekktari golfvalla Cascais-svæðisins.
Völlurinn fellur fallega inn í náttúrulegt landslag svæðisins þar sem furutré, Atlantshafið og Sintra-fjöllin mynda glæsilega umgjörð um golfið. Brautirnar eru fjölbreyttar og hönnunin býður upp á skemmtilegar ákvarðanir fyrir vana kylfinga án þess að gera völlinn fráhrindandi fyrir þá sem eru með hærri forgjöf.
Ein þekktasta hola vallarins er 13. holan, sem liggur niður í átt að Atlantshafinu og býður upp á eitt eftirminnilegasta útsýni vallarins. Quinta da Marinha hefur jafnframt hýst alþjóðleg golfmót í gegnum tíðina, þar á meðal mót á Ladies European Tour, European Seniors Tour og Challenge Tour.
Heildin er skemmtilegur og fallegur resort-völlur þar sem góð hönnun, fjölbreyttar brautir og staðsetningin við Atlantshafið skapa golfupplifun sem hentar breiðum hópi kylfinga.
Í næsta nágrenni við Quinta da Marinha er Oitavos Dunes, einn virtasti golfvöllur Portúgals og völlur sem hefur náð inn á lista GOLF Magazine yfir 100 bestu golfvelli heims.
Völlurinn er hannaður af Arthur Hills og liggur í stórbrotnu náttúrulandslagi Sintra-Cascais náttúrugarðsins, þar sem sandöldur, furuskógar og Atlantshafið setja svip sinn á upplifunina. Oitavos Dunes hefur jafnframt hýst Portuguese Open á European Tour og er frábær kostur fyrir þá sem vilja bæta aukahring við ferðina.
Kimpton Quinta da Marinha er glæsilegt fimm stjörnu hótel í hjarta Quinta da Marinha, umkringt golfvellinum, gróðri og fallegu landslagi Cascais með Atlantshafið skammt undan.
Hótelið opnaði aftur sumarið 2026 eftir umfangsmikla heildarendurnýjun og tók um leið upp Kimpton-merkið, eitt þekktasta luxury lifestyle vörumerki IHG Hotels & Resorts. Herbergi, svítur og sameiginleg rými voru endurhönnuð frá grunni með innblæstri frá náttúrunni í Sintra-Cascais, þar sem nútímaleg hönnun, portúgalskt handverk og afslöppuð strandstemning mætast.
Herbergin eru björt, rúmgóð og smekklega hönnuð og tengingin við umhverfið er áberandi í gegnum allt hótelið. Stórir gluggar, náttúruleg efni og fallegt útsýni yfir golfvöllinn, gróðurinn eða Atlantshafsströndina skapa afslappaða fimm stjörnu upplifun.
Eftir golfdaginn er hægt að slaka á við sundlaugina eða heimsækja Natur Spa, þar sem fyrsta flokks wellness-aðstaða og fjölbreyttar spa-meðferðir bíða. Matur og drykkur eru einnig stór hluti af Kimpton-upplifuninni, með vandaðri portúgalskri matargerð, fersku hráefni og líflegum bar- og veitingarýmum.
Staðsetningin fullkomnar síðan upplifunina. Golfvöllurinn er við hótelið, Atlantshafsströndin skammt undan og aðeins stutt inn í Cascais. Kimpton Quinta da Marinha sameinar því nýuppgert fimm stjörnu hótel, fyrsta flokks golf og eina bestu staðsetningu Cascais í einni glæsilegri heild.
Cascais er einn fallegasti og vinsælasti strandbær Portúgals og stór hluti af því sem gerir Quinta da Marinha að jafn spennandi áfangastað. Bærinn stendur við Atlantshafið vestan við Lissabon og sameinar fallegar strendur, sögulegan miðbæ, líflegt mannlíf og framúrskarandi veitingastaði í afslappaðri portúgalskri strandstemningu.
Í miðbæ Cascais er gaman að rölta um litlar götur, setjast á veitingastað eða kaffihús og njóta lífsins við höfnina. Svæðið er sérstaklega þekkt fyrir ferskt sjávarfang og portúgalska matargerð og meðfram strandlengjunni er að finna bæði fallegar víkur og stórbrotið landslag Atlantshafsins.
Skammt frá er Guincho-ströndin og Sintra-Cascais náttúrugarðurinn, en einnig er stutt til Sintra með höllum sínum og sögulegu umhverfi. Lissabon er sömuleiðis í þægilegri fjarlægð og því auðvelt að nýta ferðina til að upplifa höfuðborgina.
Quinta da Marinha býður þannig upp á meira en golfið eitt og sér – hér er hægt að sameina golfdagana við góðan mat, strandlíf, náttúru og borgarlíf á einu fallegasta svæði Portúgals.
✅ Beint flug með ICELANDAIR til Málaga
✅ Flutningur til og frá flugvelli
✅ Farangurs og innritunar þjónusta BagBee*
✅ 10kg handfarangurs taska ásamt golfferðapoka
✅ Gisting í 7 nætur ásamt morgunverði
✅ 6 golfhringir
✅ Aðgangur að heilsulind
✅ Íslensk fararstjórn
*BagBee er þjónustufyrirtæki sem sækir töskurnar heim til ykkar daginn fyrir brottför og sér alfarið um að innrita farangur og farþega. Bagbee afhendir ykkur brottfararspjöld og þið mætið einfaldlega upp á flugvöll, farið beint upp og í gegnum öryggisleitina. Engar innritunarraðir, engar töskur til og frá bíl og ekkert vesen.
❌Kvöldverður er ekki innifalinn en hægt að bæta við í bókunarferli*