Einstök golfferð í náttúruparadís Andalúsíu

Komdu með okkur til Sotogrande í Andalúsíu á Spáni og upplifðu einn glæsilegasta golf áfangastað Evrópu. Flogið er í beinu flugi með Icelandair til Malaga og þaðan er um klukkustundar akstur á hótelið. Við gistum á hinu glæsilega S/O Sotogrande Spa & Golf Resort sem er fimm stjörnu resort í einstöku umhverfi með útsýni yfir Miðjarðarhafið og græn gróin svæði Sotogrande. Spilað er á The Alto Club golfvellinum sem er staðsettur við hótelið og býður upp á þægilega og glæsilega„stay & play“ upplifun.

Golfvöllurinn

TheAlto Club - 27 holu völlur einnig þekktur undir nafninu Almenera Golf. Spilaðar eru mismunandi 18 holur hvern dag á vellinum,  fyrirkomulag sem margir kylfingar þekkja og elska. Þrír glæsilegir 9-holu “hringir” eru í boði: Pinos, Alcornoques og Lagos, en hver þeirra býður upp á sérkenni með tæknilega krefjandi brautum, fallegu landslagi og vandlega staðsettum “bunkers”. Völlurinn var hannaður af Dave Thomas og nýlegar endurbætur þar sem flatir voru fínpússaðar, brautir breikkaðar og öll smáatriði bætt til að tryggja spennandi og glæsilega leikupplifun. Almenera er fullkominn fyrir kylfinga sem vilja allt í senn krefjandi golf, töfrandi útsýni og einstaka kyrrð á Costa de la Luz.

Tryggðu þér pláss

Verð á mann

349000

October 7, 2026

cvbdc

Hótelið

S/O Sotogrande Spa & Golf Resort er glæsilegt fimm stjörnu resort sem er hluti af hinni virtu S/O by Accor lúxushótel keðju. Hótelið er mjög nútímalegt og afslappað og býður upp á einstaklega góða þjónustu. Herbergin eru rúmgóð og stílhrein með fallegu útsýni yfir golfvöllinn og umhverfið í kring. Á hótelinu er frábær aðstaða fyrir golfara, ásamt veitingastöðum og börum þar sem hægt er að njóta hágæða veitinga eftir frábæran dag á vellinum. Heilsulindin S/O Spa & Wellness Club spannar yfir 2.000 fermetra og býður upp á meðferðarherbergi, sauna, hammam og afslöppunarsvæði, auk æfingaaðstöðu og jóga. Tennis- og padelvellir gera dvölina enn fjölbreyttari fyrir þá sem vilja blanda saman golfi, lúxus og góðri æfingu.

Svæðið

Sotogrande er sannkölluð náttúruperla á Suður-Spáni þekkt fyrir fágað andrúmsloft, fallega smábátahöfn, góða veitingastaði og rólegt umhverfi. Svæðið er eitt það vinsælasta á Suður-Spáni hjá þeim sem vilja hágæða golf, gott veður og notalegt líf utan vallar. Sotogrande er fullkominn áfangastaður fyrir þau sem vilja sameina frábært golf og afslappaða upplifun í fyrsta flokks umhverfi.

Innifalið

✅ Beint flug með ICELANDAIR til Málaga
✅ Flutningur til og frá flugvelli
✅ Farangurs og innritunar þjónusta BagBee*
✅ 10kg handfarangurs taska ásamt golfferðapoka
✅ Gisting í 7 nætur ásamt morgunverði
✅ 6 golfhringir
✅ Golfbíll
✅ Aðgangur að heilsulind
✅ Fararstjóri - Gunnlaugur Elsuson PGA Golfkennari

*BagBee er þjónustufyrirtæki sem sækir töskurnar heim til ykkar daginn fyrir brottför, sér alfarið um að innrita farangur og farþega. Bagbee afhendir ykkur brottfararspjöld – þið mætið einfaldlega upp á flugvöll, farið beint upp og í gegnum öryggisleitina, engar innritunarraðir, engar töskur til og frá bíl og ekkert vesen.

Tryggðu þér pláss

Verð á mann

349000

October 7, 2026

cvbdc

Tryggðu þér pláss

Verð á mann

349000

October 7, 2026

cvbdc

cvbdc