Skíðaferð til 4 Vallées í Sviss

Komdu með okkur í einstaka skíðaferð til svissnesku Alpanna þar sem við gistum á Eringer Hotel í Hérémence sem er glæsilegt hótel á hinu víðfræga 4Vallées-skíðasvæði.

Flogið er með Icelandair til Zürich en þaðan er svo ekið upp í Val d’Hérens-dalinn sem er í kantónunni Valais. Þar tekur svo á móti okkur stórbrotið umhverfi alpanna, falleg fjallaþorp og eitt stærsta og fjölbreyttasta skíðasvæði í Evrópu.

Eringer Hotel er 4ra stjörnu ski-in/ski-out hótel staðsett í rúmlega 1.800 metra hæð við Thyon-hluta 4 Vallées. Hægt er að geyma skíðabúnaðinn í skíðageymslu hótelsins og hefja skíðadaginn beint fyrir utan dyrnar. Að loknum góðum skíðadegi í fjallinu tekur á móti okkur notalegt andrúmsloft á hótelinu, frábærir veitingastaðir og glæsileg heilsulind með stórbrotnu útsýni yfir Val d’Hérens og svissnesku Alpana.

Skíðasvæðið

4 Vallées er stærsta samfellda skíðasvæðið sem er alfarið innan Sviss ásamt því að vera eitt þekktasta skíðasvæði Alpanna. Svæðið býður upp á um 410 kílómetra af skíðaleiðum, 82 skíðalyftur og brekkur fyrir skíðafólk á öllum getustigum.

Skíðasvæðið tengir saman Thyon, Veysonnaz, Nendaz, La Tzoumaz og Verbier. Hvert svæði hefur sinn sérstaka karakter en saman mynda þau gríðarlega fjölbreytt skíðasvæði þar sem hægt er að finna allt frá breiðum og þægilegum brekkum fyrir byrjendur yfir í langar rauðar leiðir, krefjandi svartar brekkur og þekkt free-ride svæði.

Hæsti punktur svæðisins er Mont Fort sem er í rúmlega 3.300 metra hæð. Þaðan er hreint út sagt stórkostlegt útsýni yfir nokkra af þekktustu tindum Alpanna eins og til dæmis Matterhorn, Dent Blanche, Grand Combin og MontBlanc.

Thyon

Eringer Hotel er staðsett viðThyon-hluta 4 Vallées og því er afar einfalt að hefja og ljúka skíðadeginum við hótelið. Thyon er þekkt fyrir breiðar og skemmtilegar brekkur, sólríkar fjallshlíðar og glæsilegt útsýni yfir Val d’Hérens og Rhône-dalinn.

Svæðið hentar jafnt þeim sem vilja eiga rólega og þægilega skíðadaga sem og þeim sem vilja leggja upp í lengri ferðir um 4 Vallées.

Veysonnaz og Nendaz

Veysonnaz og Nendaz bjóða einnig uppá fjölbreyttar skíðaleiðir, fallegt útsýni og góða tengingu milli austur- og vesturhluta 4 Vallées.

Í Veysonnaz er meðal annars að finna hina þekktu Piste de l’Ours, eða “Bjarnabrekkuna”, sem hefur í gegnum tíðina hýst alþjóðleg heimsbikarmót. Nendaz liggur miðsvæðis í 4 Vallées og er mikilvægur tengipunktur fyrir þau sem vilja kanna stærri hluta skíðasvæðisins.

Verbier og Mont Fort

Verbier er þekktasti hluti 4Vallées og eitt virtasta skíðasvæði heims. Svæðið er sérstaklega vinsælt meðal reynds skíðafólks og hefur gegnum tíðina verið þekkt fyrir krefjandi skíðaleiðir,freeride-skíðun og einstaklega líflega alpastemningu.

Mont Fort er hæsti punktur 4Vallées og eitt helsta kennileiti svæðisins. Ferðin upp á toppinn er einstök upplifun, hvort sem ætlunin er að skíða niður krefjandi leiðir fjallsins eða einfaldlega njóta stórbrotins útsýnis yfir Alpana.

Tryggðu þér pláss

Verð á mann

279000

January 30, 2027

cvbdc

Hótelið

Eringer Hotel er glæsilegt 4ra stjörnu fjallahótel í Hérémence, staðsett í hjarta Val d’Hérens og beint við skíðabrekkur 4 Vallées. Hótelið sameinar nútímalega hönnun og hlýlegt andrúmsloft Alpanna þar sem náttúruleg efni, stórir gluggar og fallegt fjallaútsýni eru í aðalhlutverki.

Herbergin eru björt, rúmgóð og þægileg ásamt því að mörg þeirra bjóða upp á stórkostlegt útsýni yfir nærliggjandi fjöll og dalinn fyrir neðan. Staðsetningin er sérstaklega hentug fyrir skíðafólk, enda er hótelið ski-in/ski-out rétt við brekkuna.

Á hótelinu er gott úrval veitingastaða :

AvA Restaurant
Nútímalegur veitingastaður þar sem ítölsk matargerð mætir bragðheimi svissnesku Alpanna. Matseðillinn er hannaður til að deila og njóta saman í hlýlegu umhverfi.

Bergerie Restaurant
Notalegur fjallaskáli sem býður upp á ekta svissneska raclette og ostafondú úr hágæða ostum frá Valais. Hlýlegt alpaandrúmsloft sem hentar vel fyrir góða kvöldstund.

Tavolata Restaurant
Ítalskur pizzastaður sem sérhæfir sig í ekta napólískum pizzum með deigi sem fær að þroskast í 48 klukkustundir. Afslappað og fjölskylduvænt andrúmsloft.

Lounge Alpin
Stílhreinn bar og setustofa með arni sem býður upp á afslappað andrúmsloft, drykki og léttari rétti, auk þess sem hægt er að njóta útsýnisins af panorama verönd hótelsins.

Le Deck
Rúmgóður útiveitingastaður með stórbrotnu útsýni yfir Alpana. Vinsæll staður fyrir après-ski á veturna og grillrétti eða léttan hádegisverð yfir sumartímann.

Á hótelinu er svo hin glæsilega jarðvarma heilsulind, Les Grands Bains d’Hérémence í rúmlega 1.800 metra hæð. Þar eru meðal annars innilaug, upphituð "infinity" sundlaug, heitir pottar, gufuböð, hammam og slökunarsvæði með einstöku útsýni yfir fjöllin. Hótelgestir geta gengið beint innan hótelsins í baðaðstöðuna og njóta sérkjara á aðgangi.

Svæðið

Val d’Hérens er einn fallegasti og best varðveitti alpadalur Sviss. Svæðið er þekkt fyrir stórbrotna náttúru, klassísk fjallaþorp, timburhús og einstakt útsýni yfir tinda á borð við Dent Blanche og Matterhorn.

Hér er stemningin rólegri og persónulegri en á mörgum stærri skíðastöðum Alpanna. Gestir fá því tækifæri til að njóta hágæða skíðasvæðis án þess að þurfa að gista í miðjum ys og þys stærstu ferðamannabæjanna.

Hérémence, nærliggjandi þorp og svæðið allt í kring með sinn sterka svissneska karakter er þekkt fyrir staðbundna matargerð, osta, kjötrétti og vín frá Valais-héraðinu. Eftir góðan dag á skíðum er því tilvalið að njóta kvöldsins á hótelinu, slaka á í heilsulindinni og fá sér kvöldverð og vínglas í notalegu alpaumhverfinu.

Innifalið

✅Beint flug með Icelandair til Zürich
✅Flutningur til og frá flugvelli
✅Farangurs og innritunarþjónusta Bagbee*
✅Innrituð taska ásamt 10kg handfarangri
✅Gisting í 7 nætur ásamt morgunverði
✅Skíðageymsla á hótelinu
✅Fararstjórn, Elsa Þórdís Snorradóttir 20.feb - 27..feb / 27.feb - 6.mars
✅Fararstjórn, Jón Þór Gylfason 30.jan - 6.feb
✅Hálft fæði**

*BagBee er þjónustufyrirtæki sem sækir töskurnar heim til ykkar daginn fyrir brottför, sér alfarið um að innrita farangur og farþega. Bagbee afhendir ykkur brottfararspjöld – þið mætið einfaldlega upp á flugvöll, farið beint upp og í gegnum öryggisleitina, engar innritunarraðir, engar töskur til og frá bíl og ekkert vesen.
❌Kvöldverður er ekki innifalinn, hægt að bæta við í bókunarferli*
*Kvöldverður á veitingastað að eigin vali innan hótelsins

Tryggðu þér pláss

Verð á mann

279000

January 30, 2027

cvbdc

Tryggðu þér pláss

Verð á mann

279000

January 30, 2027

cvbdc

cvbdc