Komdu með okkur í einstaka skíðaferð til Ischgl, eins þekktasta skíðabæjar austurrísku Alpanna, þar sem við gistum á Sporthotel Daniel **** í hjarta bæjarins og skíðum á hinu víðfræga Silvretta Arena-skíðasvæði.
Flogið er með Icelandair til Zürich en þaðan er tæplega 3 klukkustunda akstur til Ischgl. Þar tekur á móti okkur stórbrotið fjallaumhverfi, 239 km af fjölbreyttum skíðaleiðum og eitt glæsilegasta lyftukerfi Alpanna. Skíðasvæðið teygir sig yfir landamæri Austurríkis og Sviss og hægt er að skíða alla leið yfir til Samnaun í Sviss.
Sporthotel Daniel er notalegt 4ra stjörnu hótel á frábærum stað í Ischgl, aðeins 2–3 mínútna göngufjarlægð frá skíðalyftunum. Að loknum góðum degi í fjallinu er stutt í veitingastaði, verslanir og hina frægu après-ski stemningu Ischgl, auk þess sem hægt er að slaka á í wellness-aðstöðu hótelsins.
Silvretta Arena er eitt þekktasta skíðasvæði austurrísku Alpanna og tengir saman Ischgl í Austurríki og Samnaun í Sviss. Svæðið býður upp á 239 kílómetra af skíðaleiðum, 46 nútímalegar skíðalyftur og kláfa og brekkur fyrir skíðafólk á mismunandi getustigum.
Stór hluti skíðasvæðisins liggur hátt yfir sjávarmáli og nær það frá um 1.377 metrum upp í 2.872 metra hæð. Ischgl er því þekkt fyrir mikið snjóöryggi og langt skíðatímabil sem nær alla jafna frá lokum nóvember og fram í byrjun maí.
Brekkurnar eru fjölbreyttar og hér má finna allt frá breiðum og þægilegum leiðum yfir í langar rauðar brekkur, krefjandi svartar leiðir, freeride-svæði og snowpark. Lyftukerfið er eitt það öflugasta í Ölpunum og gerir skíðafólki kleift að ferðast hratt og þægilega um stórt svæði.
Frá Ischgl liggja þrír aðalkláfar upp á skíðasvæðið og þaðan opnast stórt net skíðaleiða um austurríska hluta Silvretta Arena. Svæðið er sérstaklega skemmtilegt fyrir þau sem vilja skíða mikið yfir daginn og ferðast á milli ólíkra hluta fjallsins.
Fjölmargir fjallaskálar og veitingastaðir eru dreifðir um svæðið og því auðvelt að stoppa í hádegismat eða njóta sólarinnar og útsýnisins áður en haldið er áfram.
Eitt af því sem gerir Silvretta Arena sérstakt er að skíðasvæðið liggur beggja vegna landamæra Austurríkis og Sviss. Frá Ischgl er hægt að skíða yfir fjallið til Samnaun í Sviss og aftur til Austurríkis á einum og sama skíðadeginum.
Samnaun er fallegur svissneskur fjallabær sem er meðal annars þekktur fyrir tollfrjálsar verslanir. Það er því vel hægt að byrja daginn í Ischgl, skíða yfir til Sviss, stoppa í hádegismat eða skoða sig um í Samnaun og halda svo aftur yfir fjallið til Austurríkis síðdegis.
Ischgl er ekki aðeins þekkt fyrir frábær skíði heldur einnig fyrir eina líflegustu après-ski stemningu Alpanna. Fjörið byrjar strax uppi á fjallinu þar sem fjölmargir skíðaskálar og barir bjóða upp á tónlist og frábæra stemningu þegar líður á daginn.
Seinnipartinn færist stemningin svo niður í Ischgl þar sem après-ski heldur áfram á fjölmörgum börum og stöðum í bænum. Hér er après-ski stór hluti af upplifuninni og auðvelt að enda góðan skíðadag með tónlist og fjöri áður en haldið er í kvöldmat.
Fyrir þá sem vilja rólegra kvöld er jafnframt mikið úrval góðra veitingastaða og notalegra staða í Ischgl. Þessi blanda af frábæru skíðasvæði, stemningu í fjallinu og líflegum skíðabæ er stór hluti af því sem hefur gert Ischgl að einum þekktasta skíðaáfangastað Alpanna.
Sporthotel Daniel er notalegt 4ra stjörnu hótel í hjarta Ischgl, virkilega vel staðsett á rólegum stað en um leið aðeins 2–3 mínútna göngufjarlægð frá skíðalyftum, veitingastöðum og öllu því helsta sem bærinn hefur upp á að bjóða.
Hótelið er lítið og persónulegt með 21 herbergi auk nokkurra íbúða og stúdíóa. Herbergin eru hlýleg og notaleg þar sem hefðbundinn alpastíll blandast fallega saman við nútímalega hönnun og þægindi. Öll eru með svalir eða verönd þar sem hægt er að njóta ferska fjallaloftsins og útsýnisins yfir umhverfið. Aðstaðan er vel búin og skapar notalega umgjörð til að slaka á og hlaða batteríin eftir góðan dag í brekkunum.
Á hverjum morgni er boðið upp á ríkulegt morgunverðarhlaðborð áður en haldið er út í brekkurnar. Hótelið er einnig með sérstaka skíðageymslu þar sem hægt er að geyma búnaðinn á milli skíðadaga.
Að loknum degi í brekkunum er hægt að slaka á í wellness-aðstöðu hótelsins. Þar eru meðal annars tvær saunur, tvö gufuböð, infrared-klefi, ísbrunnur og sérstakt slökunarsvæði.
Ischgl er staðsett í Paznaun-dalnum í Týról og er einn þekktasti skíðabær Evrópu. Bærinn liggur í um 1.400 metra hæð, umkringdur stórbrotnum fjöllum Silvretta-fjallgarðsins, og hefur lengi verið einn eftirsóttasti vetraráfangastaður austurrísku Alpanna.
Í bænum er mikið úrval góðra veitingastaða, allt frá notalegum týrólskum stöðum upp í glæsilegri veitingastaði, ásamt kaffihúsum, börum og verslunum. Ischgl er líflegur og skemmtilegur bær þar sem mikið er um að vera, en á sama tíma er auðvelt að finna rólegri staði fyrir góðan kvöldverð og notalegt kvöld.
Allt þetta, ásamt stórbrotnu fjallaumhverfinu og alþjóðlegri stemningu, gerir Ischgl að skíðabæ þar sem upplifunin heldur áfram löngu eftir að skíðadeginum lýkur.
✅Beint flug með Icelandair til Zürich
✅Farangurs og innritunarþjónusta Bagbee*
✅Innrituð taska ásamt 10kg handfarangri
✅Gisting í 7 nætur ásamt morgunverði
✅Skíðageymsla á hótelinu
✅Aðgangur að heilsulind
✅Fararstjórn, Jón Þór Gylfason
*BagBee er þjónustufyrirtæki sem sækir töskurnar heim til ykkar daginn fyrir brottför, sér alfarið um að innrita farangur og farþega. Bagbee afhendir ykkur brottfararspjöld – þið mætið einfaldlega upp á flugvöll, farið beint upp og í gegnum öryggisleitina, engar innritunarraðir, engar töskur til og frá bíl og ekkert vesen.
❌Kvöldverður er ekki innifalinn, hægt að bæta við í bókunarferli*