Casa De Campo í Dóminíska lýðveldinu

Gríptu þetta einstaka "once in a lifetime" tækifæri og komdu með okkur í ógleymanlega golfferð til eins þekktasta golfáfangastaðar heims.

Flogið er með Icelandair til Boston og þaðan áfram til Las Américas International Airport við Santo Domingo. Frá flugvellinum höldum við til Casa de Campo við La Romana, þar sem við dveljum í 10 nætur og njótum alls þess besta sem þessi einstaki áfangastaður hefur upp á að bjóða.

Golfið er hjarta resortsins. Á svæðinu eru þrír stórkostlegir golfvellir, allir hannaðir af goðsögninni Pete Dye – Teeth of the Dog, Dye Fore og The Links. Í ferðinni spilum við samtals átta golfhringi sem dreifast á þessa þrjá ólíku velli. Teeth of the Dog hefur um árabil verið talinn einn besti golfvöllur heims og er fyrir marga kylfinga sannkallaður "Bucket list" völlur sem þeir vilja spila að minnsta kosti einu sinni á ævinni.

En Casa de Campo er miklu meira en golf. Resortið er í algjörum lúxusflokki og býður upp á fjölbreytt úrval frábærra veitingastaða og bara, einkasmábátahöfn, Minitas-ströndina, glæsilega heilsulind og fjölbreytta afþreyingu. Þar má meðal annars finna tennis-, padel- og pickleballvelli, pólóvöll í heimsklassa og skotíþróttamiðstöð.

Innan resortsins er einnig Altos de Chavón, einstakt lista- og menningarþorp byggt í anda 16. aldar Miðjarðarhafsþorps. Þar eru veitingastaðir, verslanir, listasöfn og glæsilegt hringleikahús þar sem fjölmargir heimsþekktir listamenn hafa komið fram.

Þetta er ferð fyrir þau sem vilja einfaldlega það besta – golf í algjörum heimsklassa, lúxusgistingu, frábæran mat, einstakt umhverfi og karabíska stemningu eins og hún gerist best.

Golfvellirnir

Casa deCampo er einn flottasti og jafnframt einn af þekktustu golfáfangastöðum í heimi. Staðurinn býður upp á þrjá ólíka golfvelli sem hannaðir eru eftir Pete Dye. Alls eru hér 63 golfholur og fjölbreytnin ótrúleg – allt frá stórbrotnum brautum meðfram Karíbahafinu yfir í glæsilegar brautir hátt yfir Chavón ánna. 

Teeth of the Dog® – Aðalvöllurinn og perlan á Casa de Campo sem er jafnframt einn þekktasti golfvöllur heims. Völlurinn var upphaflega hannaður af Pete Dye árið 1971 og er þekktur um allan heim fyrir stórbrotnar holur sem liggja meðfram Karíbahafinu. Hér ræður náttúran ríkjum þar sem sjórinn klettarnir og landslagið verða hluti af leiknum. Teeth of the Dog gekkst nýlega undir umfangsmikla endurnýjun og er sannkallaður „bucket list“ völlur sem flestir kylfingar vilja og ættu að spila að minnsta kosti einu sinni á ævinni. 

Dye Fore – Stórbrotinn 27 holu golfvöllur sem býður upp á allt annað landslag en Teeth of the Dog. Brautirnar liggja hátt yfir Chavón ánna með stórfenglegu útsýni yfir fjöllin, Altos de Chavón,smábátahöfnina og karabíska landslagið. Sjö holur liggja meðfram háum klettum þar sem allt að 90 metrar eru niður að ánni sem rennur fyrir neðan. Völlurinn er einstaklega skemmtilegur, en útsýnið eitt og sér gerir hringinn ógleymanlegan. 

The Links – Klassískur og skemmtilegur Pete Dye völlur sem býður upp á mjög ólíka golfupplifun en hinir tveir. Völlurinn einkennist af aflíðandi landslagi, mótuðum glompum, vötnum og gróðri og sækir innblástur í hefðbundna links-velli Bretlandseyja. The Links er talinn einn af þægilegustu völlum Pete Dye og hentar því breiðum hópi kylfinga, án þess þó að skorta áskoranir. 

Tryggðu þér pláss

Verð á mann

1190000

March 17, 2027

cvbdc

Hótelið

Casa de Campo Resort & Villas er heimsklassa lúxus resort við Karíbahafið, skammt frá La Romana. Svæðið nær yfir meira en 7.000 ekrur og er í raun heill heimur út af fyrir sig. Hér sameinast fyrsta flokks gisting, golfvellir í heimsklassa, einkaströnd, sundlaugar, glæsileg heilsulind, smábátahöfn auk þess að státa af miklu úrvali veitingastaða og bara ásamt miklu úrvali af afþreyingu.

Herbergin eru glæsileg, einstaklega rúmgóð eða um 45 fermetrar, og bjóða upp á öll þau þægindi sem búast má við á resorti í þessum gæðaflokki. Þar er gott rými til að slaka á eftir golfdaginn og hvert herbergi er með sérverönd eða svölum þar sem hægt er að njóta rólegs og fallegs umhverfisins.

Casa de Campo er hannað þannig að gestir þurfa í raun lítið að yfirgefa resortið meðan á dvölinni stendur. Hvort sem dagurinn á að fara í golf, afslöppun á Minitas-ströndinni, við sundlaugarbakkann, í heilsulindinni eða í góðan kvöldverð við smábátahöfnina er allt að finna innan svæðisins. Umfangið og fjölbreytnin gera það að verkum að þrátt fyrir langa dvöl er alltaf eitthvað nýtt að upplifa.

Eitt af því sem gerir Casa de Campo alveg sérstakt er að gestir fá 4ra manna "buggy" til afnota meðan á dvölinni stendur, ekki bara á golfvöllunum. Þannig er hægt að aka á milli hótelsins, golfvallanna, smábátahafnarinnar, veitingastaða og annarrar afþreyingar á svæðinu. "Buggy-in" verður þannig eins og eigin bíll á meðan á dvölinni stendur og gefur gestum frelsi til að ferðast um þetta gríðarstóra resort á sínum hraða.

Casa de Campo er því miklu meira en hefðbundið golf hótel – þetta er heill lúxus áfangastaður, þar sem fyrsta flokks gisting, þjónusta, afþreying og einstakt umhverfi skapa upplifun sem enginn gleymir.

Svæðið

Casa de Campo er staðsett við La Romana á suðausturströnd Dóminíska lýðveldisins þar sem tær sjórinn, pálmatré og suðræn náttúra skapa alveg einstaka umgjörð.

Innan svæðisins má meðal annars finna Altos de Chavón, fallegt þorp byggt í miðjarðarhafsstíl og staðsett hátt yfir Chavón ánni. Þar er fjöldi veitingastaða, barir, verslanir og listalíf í skemmtilegu umhverfi. Einnig er á svæðinu glæsileg smábátahöfn, þar sem veitingastaðir, barir og verslanir liggja meðfram smábátahöfninni.

Eftir góðan dag á golfvellinum er því hægt að leggja kylfurnar til hliðar, stökkva upp í "buggy-in" og velja á milli þess að fara í kvöldverð við höfnina, fá sér drykk í Altos de Chavón eða slappa af á ströndinni og njóta Karíbahafsins. Þetta er einmitt það sem gerir Casa de Campo að svo sérstökum áfangastað – hér snýst ferðin ekki eingöngu um frábært golf heldur alla upplifunina í kringum það.

Á svæðinu er svo einkaströndin Minitas ásamt Minitas Beach Club þar sem þú getur annaðhvort notið kyrrðarinnar í afslappaðri strand stemningu, sötrað Pina Colada eða valið úr úrvali veitingastaða með stórkostlegu útsýni yfir Karíbahafið. Hér er því meira en nóg að gera þegar golfhringnum lýkur. 

Innifalið

✅ Flug með Icelandair til Boston og Jetblue til Dóminíska lýðveldisins
✅ Akstur til og frá flugvelli
✅ Farangurs og innritunar þjónusta BagBee*
✅ Innrituð taska, 10kg handfarangur ásamt golfferðapoka
✅ Gisting í 10 nætur á Casa de Campo Resort
✅ Matur og ótakmarkaðir drykkir á yfir 15 veitingastöðum og börum
✅ Buggy bíll (4ra manna) til afnota innan svæðisins meðan á dvöl stendur
✅ 2 golfhringir á Teeth of the Dog® ásamt golfbíl og caddy
✅ 3 golfhringir á Dye Fore ásamt golfbíl og caddy
✅ 3 golfhringir á The Links ásamt golfbíl
✅ Snarl og drykkir á "buggy bar" á öllum golfvöllum
✅ Ótakmarkaður aðgangur á hestbak
✅ Ótakmarkaðar vatnaíþróttir - kajakar, paddle board, snorkl búnaður, hjólabátar o.fl
✅ Ótakmörkuð afnot af tennis og padelvöllum
✅ Frítt í leirdúfuskotfimi**
✅ Aðgangur að Minitas einkaströndinni
✅ Fararstjórn, Gunnlaugur Elsuson PGA Golfkennari


*BagBee er þjónustufyrirtæki sem sækir töskurnar heim til ykkar daginn fyrir brottför, sér alfarið um að innrita farangur og farþega. Bagbee afhendir ykkur brottfararspjöld – þið mætið einfaldlega upp á flugvöll, farið beint upp og í gegnum öryggisleitina, engar innritunarraðir, engar töskur til og frá bíl og ekkert vesen.
**Frítt í eitt skipti í leirdúfuskotfimi

Tryggðu þér pláss

Verð á mann

1190000

March 17, 2027

cvbdc

Tryggðu þér pláss

Verð á mann

1190000

March 17, 2027

cvbdc

cvbdc