H
Quinta da Marinha er einn glæsilegasti golfáfangastaður Portúgals, staðsettur við Cascais þar sem Atlantshafsströndin, fyrsta flokks golf og portúgölsk stemning mætast. Gist er á hinu nýuppgerða fimm stjörnu Kimpton Quinta da Marinha og spilað á Quinta da Marinha Golf í stórbrotnu umhverfi við resortið. Fimm stjörnu gisting, frábært golf og nálægðin við Cascais gera Quinta da Marinha að einum mest spennandi golfáfangastað Portúgals.
H
La Manga Club er eitt þekktasta golfresort Spánar og hefur í meira en hálfa öld verið meðal fremstu golfáfangastaða Evrópu. Þar eru þrír 18 holu golfvellir, þar á meðal hinn sögufrægi South Course sem Arnold Palmer endurhannaði, ásamt fimm stjörnu Grand Hyatt La Manga Club Golf & Spa. Resortið hefur tvívegis verið valið Europe’s Best Golf Venue og sameinar einstaka golfsögu, fjölbreytt golf og fyrsta flokks resort-upplifun.
H
Ombria Algarve er eitt glæsilegasta nýja golfresort Evrópu þar sem fimm stjörnu lúxus, stórbrotin náttúra og fyrsta flokks golf fara saman. Resortið var valið í 10. sæti yfir 100 bestu golfresort Evrópu árið 2025 og þar er að finna hinn verðlaunaða Ombria Golf Course, sem var valinn besti nýi golfvöllur Evrópu árið 2024. Gist er á hinu stórglæsilega Viceroy at Ombria Algarve, sem var valið besta fimm stjörnu hótel Portúgals árið 2026.
H
Casa de Campo er eitt virtasta golfresort heims og á óskalista kylfinga um allan heim. Þar eru þrír stórkostlegir golfvellir eftir Pete Dye, þar á meðal hinn goðsagnakenndi Teeth of the Dog sem er talinn einn besti golfvöllur Karabíska hafsins. Lúxusgisting, framúrskarandi þjónusta og einstök golfupplifun gera Casa de Campo að áfangastað sem fáir gleyma.
H
FARA Golfskólinn á Empordà Golf á Costa Brava býður upp á markvissa PGA-kennslu í einu glæsilegasta golfumhverfi Spánar. Dvalið er á frábæru golfresorti með tveimur 18 holu völlum og fyrsta flokks æfingaaðstöðu. Unnið er skipulega með sveiflu, stutta spilið og leikskipulag í litlum hópi sem tryggir persónulega og faglega nálgun. Golfskólinn hentar bæði byrjendum og lengra komnum kylfingum sem vilja bæta leikinn og njóta golfsins í fyrsta flokks umhverfi.
H
Komdu með okkur til Costa Brava á Spáni og upplifðu frábæra golfferð á fallegu og rólegu svæði í norðurhluta landsins, skammt frá Barcelona. Við gistum á Hotel Terraverda, mjög þægilegu 4 stjörnu golfhóteli sem stendur beint við Empordà golfvellina. Empordà Golf býður upp á tvo ólíka og skemmtilega 18 holu velli sem báðir teljast meðal þeirra bestu á Spáni. Fararstjóri er Jón Þór Gylfason